Bíókvöld tvisvar í mánuði

Í Ási er bíóstjóri, Eðvarð Guðmannsson eða Eddi bílstjóri sem hefur undanfarin ár verið með bíósýningar tvisvar í mánuði og sýnt myndir sem heimilsmenn óska eftir að fá að sjá. Í fyrrakvöld var sýnd myndin Red Heat. Eldhúsið býður alltaf upp á snakk og gos og þetta vekur alltaf mikla lukku, þó svo mætingin sé misjöfn eftir þeirri mynd sem verið er að sýna. Guðrún Lilja átti leið um og smellti mynd af strákunum.