Hauststarf Markarkórsins hafið

Fyrir rúmum 3 árum var stofnaður kór í Mörk sem fékk nafnið Markarkórinn.
Félagar í kórnum eru heimilisfólk og starfsfólk Markar og íbúar sem búa í Íbúðum 60+ í Mörkinni, auk þess sem aðstandendum heimilisfólks er velkomið að taka virkan þátt.
Það er engin krafa gerð um söngreynslu eða tónlistarþekkingu, það er allra mikilvægast að hafa ánægju af því að syngja. Það er reyndar mikilvægt að kórfélagar geti lesið texta af blöðum, því á efnisskrá kórsins er jafnan blanda af gömlu, góðu lögunum og lögum sem enginn kann og allir læra á æfingum. Svo má ekki gleyma félagslega hlutanum því á æfingum hittist heimilisfólk sem býr á mismunandi stöðum á heimilinu.
Markarkórinn æfir einu sinni í viku yfir vetrarmánuðina, æfingarnar eru á þriðjudögum. Fyrst um sinn hefjast þær um kl. 13:00 og standa í klukkustund og fara fram við matsalinn/kappelluna á 1. hæðinni í Mörk. Stjórnandi kórsins er Kristín Waage organisti.